Í tilefni af sýningu Ingu Svölu og Wus Shanzhuan, Bird before Peace, í Hangzhou, nóv. 2025 – apríl 2026

            Ég hef fylgst með myndlistariðkun Ingu Svölu systur minnar (f. 1966) í um fimmtíu og fimm ár, eða allt frá því að hún var fjögurra eða fimm ára og við Hallvarður (1962 – 2009), eldri bræður hennar, fylgdumst dálítið hreyknir með systur okkar selja myndir sem hún hafði teiknað. Hún stillti þeim upp á litlu söluteppi á gangstéttinni fyrir utan húsið. Þetta gerði hún fyrst sumarið 1970 eða 1971 og við áttum heima á Vesturgötu 40 í Reykjavík, í húsi sem langafi og langamma keyptu þegar þau voru ung. Þetta gamla hús sem nú er því miður horfið stóð alveg upp við gangstéttina þar sem Inga Svala seldi vegfarendum myndir.

Lesa meira