[Færsla upphaflega birt á facebook.]
Mig langar að hrósa viðgerðamönnunum sem vinna hjá Nesdekkjum úti á Granda.
Lesa meira[Færsla upphaflega birt á facebook.]
Mig langar að hrósa viðgerðamönnunum sem vinna hjá Nesdekkjum úti á Granda.
Lesa meira[Þessi grein birtist áður á bloggsíðu minni á fréttamiðlinum Stundinni sunnudaginn 27. maí 2018. Hún birtist þar svona.]
Kona fer í stríð eftir Benedikt Erlingsson leikstjóra sem frumsýnd var á dögunum í Háskólabíói er lífleg kvikmynd og skemmtileg. Mér sýnist mega lýsa henni sem blöndu af hasarmynd og grínmynd. Það er líka í henni þjóðfélagsádeila. Og hún er á ýmsan hátt óvenjulega frískleg. Þannig er kvikmyndatónlistin til dæmis flutt af tónlistarfólki í mynd, það kemur sér fyrir á heppilegum stöðum í nágrenni við leikarana og bregður á leik og kvikmyndin minnir þannig á frjálslegar uppfærslur í leikhúsi. Þetta gera kvikmyndagerðarmenn reyndar einstöku sinnum en í svipinn man ég ekki eftir þessu stílbragði í íslenskri kvikmynd.
Lesa meira[Þessi grein birtist áður á bloggsíðu minni á Stundinni, miðvikudaginn 9. maí 2018. Hún birtist þar svona.]
Þegar ég fór í sund um daginn vildi svo óvenjulega til að það voru næstum engir gestir í sundlauginni. Ég fór í heita pottinn, og þar var fyrir ein kona, sem heilsaði, og ég heyrði einhvern veginn á röddinni eða á framburðinum að hún væri ekki íslensk. Framburðurinn var samt mjög góður og setningin fullkomin að gerð. Ég heilsaði auðvitað líka.
Lesa meira[Þessi grein birtist áður á bloggsíðu minni á fréttamiðlinum Stundinni þriðjudaginn 8. maí 2018. Hún birtist þar svona.]
Það er býsna almennt viðhorf í landinu að þjóðin eigi að bjóða nýbúa og gesti velkomna til landsins. Þetta er gott viðhorf. Það er frábært þegar fólk utan úr heimi vill leggja okkur lið við að byggja hér upp gott samfélag. Við eigum að fagna því. Það er raunar ekki svo
Lesa meira[Þessi grein birtist áður á bloggsíðu minni á fréttamiðlinum Stundinni föstudaginn 4. maí 2018. Hún birtist þar svona.]
Ég er í hinum fjölmenna hópi manna sem ber djúpa virðingu fyrir margvíslegu handverki og iðnum. Ég ber líka virðingu fyrir eiginleikum á borð við iðjusemi, stundvísi, dugnað og orðheldni.
Lesa meira