Ég hef fylgst með myndlistariðkun Ingu Svölu systur minnar (f. 1966) í um fimmtíu og fimm ár, eða allt frá því að hún var fjögurra eða fimm ára og við Hallvarður (1962 – 2009), eldri bræður hennar, fylgdumst dálítið hreyknir með systur okkar selja myndir sem hún hafði teiknað. Hún stillti þeim upp á litlu söluteppi á gangstéttinni fyrir utan húsið. Þetta gerði hún fyrst sumarið 1970 eða 1971 og við áttum heima á Vesturgötu 40 í Reykjavík, í húsi sem langafi og langamma keyptu þegar þau voru ung. Þetta gamla hús sem nú er því miður horfið stóð alveg upp við gangstéttina þar sem Inga Svala seldi vegfarendum myndir.
Eiginmaður Ingu Svölu, Wu Shanzhuan (f. 1960) sýndi myndlist sína fyrst árið 1987 hér á Íslandi. Sýningin var haldin í Grjótaþorpinu, í listsýningarsal sem hét Hlaðvarpinn. Kári Schram, jafnaldri Wus og vinur, stóð fyrir sýningunni. Ég mætti á opnun sýningarinnar, hafði hitt Kára kunningja minn á förnum vegi og hann hvatt mig til að koma og sjá sýningu þessa snilldarmanns. Þeir Wu og Kári kynntust einhverjum misserum fyrr þegar þeir voru báðir i listnámi og Kári fór sem skiptinemi í listaháskólann í Hangzhou í Kína, þar sem Wu stundaði reglulegt nám. Það eru því að nálgast fjörutíu ár frá því að ég byrjaði að fylgjast með myndlist Wus. Ég man enn sérstaklega eftir einu verki sem ég sá á sýningunni og varð talsvert hrifinn af.

[Inga og Wu sem ungt listafólk, þegar þau voru að byrja á listaprójektinu Birds before Peace sem sýningin í Hangzhou heitir eftir. Ljósmynd eftir Maike Klein, Hamborg.]
Þau hjónin halda gjarna stórar myndlistarsýningar í útlöndum, og ég hef farið á eina sem þar var haldin árið 2008. Hún var haldin í borginni Guangzhou, í borg sem hét Kanton í gömlu landafræðinni. Um þessa borg rennur Perlufljót, næst stærsta fljót í Kínaveldi, mjög stórt fljót sem sést af því að vatnsrennslið í fljótinu er um það bil 25 sinnum meira en vatnsrennslið í Þjórsá. Og í þessu fljóti miðju, og á að giska í borgarmiðjunni um leið, er eyja sem heitir Er Sha eyja. Og þar eru Kjarvalsstaðir íbúanna í Guangshou staðsettir, en safnið heitir Guangdong Museum of Art. Þess má geta að Guangzhou er höfuðborg Guangdong héraðs og íbúafjöldinn um 20 milljónir manna. Guangdong hérað er tæplega tvöfalt (um 1,8 sinnum) stærra en Ísland að flatarmáli og um leið svolítið minna að flatarmáli en Stóra Bretland. Í héraðinu búa um 125 til 130 milljónir manna. Þá má nefna að Hong Kong borg og Kowloon skagi eru nátengd Guangdong héraði, og voru hluti af því héraði áður en Hong Kong eyja var gerð að breskri nýlendu á fyrri hluta 19. aldar.

[ Kollage eða klippimynd sem lýsir sýningu Wus á 22 á Laugavegi 22 árið 1991 .]
Þegar ég kom á opnun þeirra Ingu og Wus í Guangdong Museum of Art kom það mér skemmtilega á óvart að sjá þar í einum salnum fjöldann allan af rauðum málverkum sem ég hafði séð löngu fyrr á sýningu Wus sem var haldin í veitingahúsinu 22 á Laugavegi 22. Sýningin hét Today No Water, en Today No Water er heiti á verki eða listaprójekti Wus sem enn er í vinnslu. Þess má geta að skáldsagan Today No Water (enska heiti skáldsögunnar) eftir Wu er hluti af þessu prójekti. Hún kom út árið 2008, hnausþykk bók sem ég hef ekki lesið, enda kann ég ekki kínversku.
En fyrir sýninguna í veitingahúsinu 22 hafði Wu unnið fjöldann allan af tvívíðum og þrívíðum rauðum verkum með áletruðum texta á íslensku, ensku og kínversku. Þessi verk þöktu hvern krók og kima í veitingahúsinu og meira að segja glugga þess. Sýninguna setti Wu upp með dyggri aðstoð Ingu Svölu og þeirra Olgu Bergmann og Önnu Hallin á 22 árið 1991, en þarna var sýningin sem sagt aftur komin upp rúmum aldarfjórðungi síðar í þessu höfuðlistasafni Guangdong héraðs. Sýning þeirra Ingu Svölu og Wus í Guangdong Museum of Art náði yfir alla sýningarsali þessa mikla listasafns og verkin frá veitingahúsinu 22 voru bara lítið brot af því öllu saman.
Ég hef ekki tölu eða yfirsýn yfir allar sýningar sem þau Inga og Wu hafa haldið, ýmist ein eða saman, á undanförnum árum. En núna stendur yfir stór sýning, með að mér skilst um 3000 verkum. Þessi verk eru ýmist höfundarverk Ingu Svölu eða Wus eða sameiginlegt höfundarverk þeirra beggja. Sýningin er haldin í listasafninu By Art Matters. En þetta listasafn er í borginni Hangzhou í Zhejiang héraði. Sýningin heitir upp á ensku “Bird before Peace”, Inga Svala Thorsdottir & Wu Shanzhuan. Sýningartímabilið er frá 18. nóvember 2025 og fram til 5. apríl 2026. Titill sýningarinnar Bird before Peace vísar í sameiginlegt verk eða listaprójekt sem þau hafa unnið að allt frá árinu 1993.

[Auglýsingaspjald vegna sýningar Ingu Svölu og Wus í listasafninu BY ART MATTERS. Þess má geta að þau Inga og Wu hönnuðu sjálf hinn óvenjulega font sem sýndur er á spjaldinu, en þau kalla hann peace font.]
Ég hef aldrei komið til Hangzhou borgar, en þar er listaháskólinn góði sem þeir Wu og Kári námu við fyrir rúmum fjörutíu árum. Þessi listaháskóli mun vera talinn annar af tveimur bestu listaháskólum í landinu. Hangzhou er annars sögð vera mjög falleg borg. Þar búa um 12,5 milljónir manna. Hangzhou er höfuðborg í Zheiiang héraði sem liggur að Austur-Kínahafi. Þar búa um 67 milljónir manna. Héraðið er nokkurn veginn jafn stórt að flatarmáli og Ísland. Austur af héraðinu liggur stórborgin Shanghai. Listasafnið By Art Matters þar sem Inga Svala og Wu sýna núna er staðsett í nýju hverfi sem var hannað af arkitektinum Renzo Piano (f. 1937).

[Listasafnið BY ART MATTERS í Hangzhou-borg með auglýsingum um sýningu þeirra Ingu og Wus. Ljósmynd: Hu Liming.]

[Verk af sýningunni: Súlurnar eru tengdar saman með einskonar sviga-verki, en slíka sviga má oft sjá bregða fyrir í verkum þeirra Ingu og Wus. Á gólfinu liggur svo gríðarlangur flísalagður bekkur, slíkir hlutir eru líka stef í list þeirra. Ljósmynd: Hu Liming.]
Ég hef skoðað ljósmyndir frá þessari sýningu mér til mikillar ánægju og sé þarna ýmis verk sem eru gamlir kunningjar, þar á meðal verk sem Inga Svala fékk foreldra okkar til að aðstoða sig við, og Inga skráði þau ásamt sjálfri sér fyrir verkunum. Þetta eru þrjú verk. Eitt þeirra er stórt segl sem mamma, Arnfríður Hallvarðsdóttir (f. 1942), bjó til með Ingu Svölu og fjölmörgum kínverskum saumakonum úti í Shanghai árið 2008. Seglið er handsaumað úr notuðum fötum. Seglið sýnir regnboga þar sem orðið BORG er saumað inn í “skugga regnbogans”, eða í gráan flöt sem liggur milli enda regnbogans. Á seglið eru einnig rituð skilaboðin “BORG toutes directions” eða “Allar leiðir liggja til BORGAR.”

[Hér er seglið sem Inga fékk mömmu ásamt mörgum kínverskum saumakonum til að sauma með sér. Seglið sýnir regnboga og er saumað úr notuðum fatnaði. Seglið telst sameiginlegt verk þeirra mæðgna. Verkin á veggnum teljast öll hluti af verkinu BORG. Ljósmynd: Hu Liming.]
Þá er þarna annað verk sem mamma vann með Ingu Svölu. Það heitir Hugljómunarhúfa, og er húfa sem er um leið einskonar kort af mannsheilanum. Það má kannski líka segja að húfan hafi einfaldlega lögun mannsheilans. Mamma heklaði húfuna úr silkigarni eftir teikningu Ingu Svölu og saumaði svo mynd út í húfuna með perlum og pallíettum. Sagt er þegar hugljómun eigi sér stað eigi sér um leið stað samstilling eða synkronisering á heilaboðefnum. Og myndin sem er saumuð í húfuna er tilraun til að sýna einmitt þessa samstillingu. Þessi húfa er mjög falleg og hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá mér.

[Hugljómunarhúfan, sem mamma saumaði eftir forsögn Ingu Svölu. Verkið telst sameiginlegt verk þeirra mæðgna.]
Þá er þarna einnig sýnt verk sem Inga Svala fékk pabba, Þór Þorbergsson (1936 – 2022) til aðstoða sig við. Pabbi dró upp línur sem sýna gömul landamæri jarða á fjölmörg prentuð landakort af svæðinu sem Inga Svala hefur hugsað sér að milljónaborgin BORG verði reist á. Kortið sýnir hvernig náttúrleg landamerki hafa afmarkað bújarðir á Íslandi frá upphafi. Þetta kort er hluti af verki Ingu Svölu sem kallast BORG, með stórum stöfum. Verkið BORG snýst um hugmyndir Ingu Svölu um stóra milljónaborg sem hún hefur planað við Reykjanes Faxaflóamegin og allt út á Snæfellsnes. Á sýningunni í Hangzhou sýnir hún ýmis verk úr þessu BORGAR-prójekti. Inga Svala telur að það yrði gott fyrir samfélagið á Íslandi að reisa borg fyrir um milljón íbúa.

[Kortin af Snæfellsnesi, Reykjanesskaga og landsvæðinu þar á milli sem Inga Svala fékk pabba til að aðstoða sig við að búa til. Kortið telst sameiginlegt verk þeirra feðgina. Ljósmynd: Hu Liming.]
Þessi þrjú verk sem hún fékk foreldra okkar til að aðstoða sig við að búa til eru auðvitað bara brot af öllu því skemmtilega sem sjá má ef fólk leggur leið sína til Hangzhou borgar til að skoða sýningu þeirra hjóna.

[Mynd af sýningunni. Þau Inga og Wu hafa talsverðan áhuga á byggingarlist og þessi burðarvirki sem sjást fremst á myndinni eru dæmi sem sýna þann áhuga. Ljósmynd: Hu Liming.]

[Þessi mynd er tekin á fyrstu hæð safnsins, en þar eru eingöngu sameiginleg verk þeirra hjóna sýnd. Ljósmynd: Hu Liming.]
Þessi sýning virðist hafa vakið talsverða athygli meðal almennings í Kína, eða amk. meðal listunnenda þar. Mér datt í hug að birta hér nokkra tengla sem vísa á umfjöllun um þessa sýningu í kínverskum fjölmiðlum og kínverskum félagsmiðlum, þó að ég reikni með að fæstir geti lesið textann þar birtist.
China News:
https://www.china-news-online.com/h5/index/newDetail?id=175663
Forsíðufrétt í stærsta dagblaðinu í Hangzhou borg, daginn eftir sýningaropnun:
https://mdaily.hangzhou.com.cn/mrsb/2025/11/18/page_list_20251118.html#page1
Greinar á félagsmiðlum:
(1) https://mp.weixin.qq.com/s/ToJH9TBGppqaOnIrgpRGhA
(2) https://mp.weixin.qq.com/s/_ebYhKxpYOiuolO3EmFJMQ
(3) https://mp.weixin.qq.com/s/uRtHPTp25p1JHpSmwd_pbQ
~ ~ ~
