Íslendingar geta búist við að lifa í 82 til 83 ár samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Það gera rúmlega 30 þúsund daga, eða um 30.100 daga. Þeir tímamælikvarðar sem við miðum líf okkar hvað mest við eru mínúta, klukkustund, dagur, vika, mánuður, ár. Þar er vikan, sjö dagar, sunnudagur, mánudagur, þriðjudagur og svo framvegis, mjög algengur mælikvarði. Vikan er nærtækur mælikvarði á þann tíma sem við eigum í vændum, svona alveg á næstunni, í bráð, ef svo má segja.
Lesa meiraGuðmundur Örn Flosason. Minning.
[Minningargreinin birtist í Morgunblaðinu á útfarardag Guðmundar, 3. mars 2022, sjá. Hér er hún ofurlítið breytt. Hér fylgja með greininni fáeinar myndir sem ég tók í veiðiferð sem við fórum, gamlir skólafélagar, fyrir nokkrum árum.]
Vinátta sem myndast á unglingsárum varir stundum ævilangt. Slík vinátta getur verið jafn djúp þótt samskiptin minnki með árunum. Þannig var vinskapur okkar Guðmundar Arnar Flosasonar.
Lesa meiraNýjar tölur um farsóttina
[Grein þessi birtist fyrst á Stundinni þann 24. janúar 2022, sjá hér.]
Það hefur gengið misvel hjá ríkjum heimsins að fást við farsóttina illu, kóvid 19. Á Íslandi hafa stjórnvöld haldið því fram frá upphafi að hér gangi einstaklega vel að fást við farsóttina og að Íslendingar séu í fremstu röð á þessu sviði sem ýmsum öðrum.
Lesa meira85 ára afmæli pabba
Í dag á pabbi, Þór Þorbergsson, áttatíu og fimm ára afmæli. Mamma, Arnfríður Margrét Hallvarðsdóttir, og pabbi giftust fyrir rúmum sextíu árum. Á þeim langa tíma hafa þau auðvitað ratað saman í ýmis ævintýri. Eitt af þessum ævintýrum voru árin á Skriðuklaustri. Þar var pabbi bústjóri tilraunabús í landbúnaði í meira en áratug.
Lesa meiraOrsakasamhengi milli galla í framkvæmd kosninga og breytingar á niðurstöðum kosninganna
1) Fyrri talning var með ýmsum göllum, en þá var talið upp úr kjörkössunum og atkvæðaseðlar voru „ómengaðir“. Lokatölur voru kynntar um morguninn.
Lesa meira